Hryllilega hraðar
Mac tölvur

Hryllilega hraðar
Mac tölvur

Apple kynnti nýja línu af flögum fyrir nýjar
MacBook Pro fartölvur og iMac 24"
borðtölvuna á hrekkjavökunni.

iMac 24" M3

iMac 24" M3

Sambyggða iMac 24 borðtölvan verður
allt að tvöfalt hraðari með nýju M3 flögunni.

iMac 24" M3

MacBook Pro M3 14"/16"

MacBook Pro M3 14"/16"

MacBook Pro með M3 Max flögu er svakalegur vinnuhestur og getur boðið upp á 128GB af vinnsluminni.

MacBook Pro M3

Hryllilega hraðar Mac-tölvur

Ný og öflug M3 flaga

Nýju M3 flögurnar eru hryllilega hraðar og koma í þremur útgáfum: M3, M3 Pro og M3 Max. Flögurnar eru byggðar með 3 nanómetra tækni sem skilar auknum afköstum og betri nýtingu rafmagns. Skjákjarnar M3 styðja nú meiri myndgæði með RTX stuðningi sem getur reiknað betri lýsingu og speglun í þrívídd eða tölvuleikjum. Þannig getur þrívíddarteikniforritið Blender skilað af sér mun hraðar. M3 flögurnar bjóða nú upp á sveigjanlegt skyndiminni sem eykur verulega nýtingu þess hjá skjákjörnum. M3 línan er allt að 50% hraðari en M1 sem er stórt stökk á einungis þremur árum.

Ný og öflug M3 flaga

Tölvur með M3 flögu

Svört og mött MacBook Pro

Nýr svartur mattur litur sem felur fingraför.

MacBook Pro 14" og 16" tölvurnar fá nýjar M3 flögur og koma nú í svörtum og möttum lit sem forðast fingraför (M3 Pro og M3 Max útgáfurnar). MacBook Pro 14" með M3 flögu tekur við af MacBook Pro 13" með Touch Bar snertistikunni og er nú hraðari, býður upp á meira vinnsluminni, stærri og betri skjá, betri hátalara og 22 klukkustunda rafhlöðuendingu. Allar MacBook Pro eru nú bjartari og fá auka 100 birtustig við venjulega notkun og geta skotist upp í 1600 birtustig þegar horft er á myndefni í HDR-gæðum.

Nýr svartur mattur litur sem felur fingraför.

MacBook Pro með M3 Max

M3 Max er alveg hræðilega hröð flaga.

MacBook Pro með M3 Max flögu er svakalegur vinnuhestur og getur boðið upp á 128GB af vinnsluminni, fer létt með greiningar í MATLAB, skilar af sér birtingum í Maxon Redshift 2,5 sinnum fyrr en M1 Max og fjarlægir truflun frá skuggum í DaVinci Resolve 65% fyrr en M1 Max. M3 Max fer létt með Baldur’s Gate 3 og skilar af sér yfir 100 römmum á sekúndu í 1080p upplausn.

M3 Max er alveg hræðilega hröð flaga.
M3 Max er alveg hræðilega hröð flaga.

Það fer vel um iMac 24" borðtölvuna inn á heimilum.

Hraðari iMac 24"

Sambyggða iMac 24" borðtölvan verður allt að tvöfalt hraðari með nýju M3 flögunni og er 2,5 sinnum hraðari en öflugasta iMac 27" borðtölvan með Intel örgjörva á sínum tíma. iMac 24" getur nú fengið allt að 24GB af vinnsluminni, styður RTX myndvinnslu, getur klippt 12 strauma af 4K myndefni á sama tíma og kemur í sjö mismunandi litum með mús og lyklaborði í stíl.

Hraðari iMac 24"

Nýttu gamla tækið
upp í nýtt.

Nýttu gamla tækið
upp í nýtt.

Viò metum gömlu tækin þín til fjár. Við tökum gamla símann, snjallúrið, tölvuna og jafnvel gömlu spjaldtölvuna upp í nýja vöru hjá Epli.

Skoða uppítökuverð

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: