Ef Apple Watch tekur ekki hleðslu eða kveikir ekki á sér
Prófaðu skrefin hér að neðan ef þú þarft aðstoð eða getur ekki hlaðið Apple Watch.
Athugaðu hvort Apple Watch tekur hleðslu
Ef úrið þarf á hleðslu að halda muntu sjá rauða eldingu
á skjánum. (Þú gætir þurft að smella á hliðartakkann til að kveikja á skjánum.) Þegar úrið er í hleðslu mun rauða eldingin
verða græn
. Ef skjárinn er svartur eða þú sérð mynd af Apple Magnetic Charging Cable og rauðri eldingu
, þarftu að hlaða úrið í allt að 30 mínútur.






Aðstoð
Ef þú ert að notast við hleðslustand eða -kapal frá þriðja aðila skaltu prófa hleðslukapalinn sem fylgdi með Apple Watch.
Ef Apple Watch hleður ekki eða þú sér skilaboð um að hleðsla með þessum aukahlut er ekki studd:
- Gakktu úr skugga um að Apple Magnetic Charging Cable sé tengdur alla leið inn í USB hleðslutækið, og gakktu svo úr skugga um að hleðslutækið sé alveg í sambandi við rafmagn.
- Gakktu úr skugga um að þú sért að nota Apple Magnetic Charging Cable og USB hleðslutækið sem fylgdi með Apple Watch.
- Fjarlægðu alveg plastfilmurnar báðum megin á segulhleðslunni, séu þær til staðar.
- Gakktu úr skugga um að segulhleðslan og bakhlið Apple Watch séu hrein.
- Komdu úrinu fyrir á segulhleðslunni. Seglarnir sjá til þess að Apple Watch sé á réttum stað, þú ættir að sjá græna eldingu
á skjánum.
- Ef Apple Watch hleður ekki eftir þessi skref skaltu framkvæma „force restart“. Ýttu á og haltu niðri bæði hliðartakkanum og Digital Crown í að minnsta kosti 10 sekúndur eða þar til þú sérð Apple merkið.
- Prófaðu annan Apple Watch Magnetic Charging Cable og USB hleðslutæki. Ef úrið er alveg hleðslulaust gætir þú þurft að bíða í nokkrar mínútur eftir að græna eldingin
birtist á skjánum og gefur til kynna að úrið sé að hlaðast.
Frekari aðstoð
Ef þú þarft frekari aðstoð getur þú haft samband við Apple Support, lesið þig frekar til hér á síðunni eða komið á verkstæði Epli.
Útgáfudagur: 6. desember 2019