Hvað skal gera áður en tæki er sent á verkstæði Epli
Til að spara tíma skaltu fylgja þessum skrefum áður en þú sendir tæki til okkar.
Áður en þú sendir iPhone, iPad, iPod touch eða Apple Watch til Epli
Áður en þú sendir tækið þitt til okkar, eða ferð með það til endursöluaðila sem sendir tækið áfram til okkar, skaltu fylgja þessum skrefum. Ef tækið kveikir ekki á sér, eða svarar ekki snertingu, skaltu klára öll þau skref sem þú getur:
- Ef þú þarft að senda iPhone sem er paraður við Apple Watch, eða öfugt, skaltu afpara tækin. Þegar þú afparar tækin mun síminn taka nýtt afrit af gögnum Apple Watch. Þú munt svo geta notað afritið til að endurheimta stillingar og gögn á Apple Watch þegar tækið kemur úr viðgerð.
- Taktu afrit af gögnum tækisins.
- Farðu í Settings > Messages og slökktu á iMessage.
- Farðu í Settings > [your name] > Find My [device], og turn off Find My [device] til að slökkva á Find My Device*. Sláðu inn Apple ID lykilorðið þitt, veldu svo Turn Off.
- Gangi ekki að slökkva á Find My Device á tækinu sjálfu getur þú fylgt leiðbeiningum um hvernig skal fjarlægja tæki á iCloud.com
- Fjarlægðu SIM kortið, hulstur og/eða skjávörn. Ekki senda kapal og hleðslutæki nema þig grunar að vandinn sé tengdur því.
- Fylltu út og prentaðu fylgiblað tækisins.
Nú ætti tækið þitt að vera tilbúið til innsendingar eða móttöku hjá endursöluaðila.
Áður en þú sendir Mac til Epli
Áður en þú sendir tækið þitt til okkar, eða ferð með það til endursöluaðila sem sendir tækið áfram til okkar, skaltu fylgja þessum skrefum. Ef tækið kveikir ekki á sér, eða svarar ekki snertingu, skaltu klára öll þau skref sem þú getur:
- Taktu afrit af gögnum tækisins.
- Farðu í System Preferences > Apple ID > iCloud > Find My Mac, og afhakaðu til að slökkva á Find My Device. Sláðu inn Apple ID lykilorðið þitt og samþykktu.
- Gangi ekki að slökkva á Find My Device á tækinu sjálfu getur þú fylgt leiðbeiningum um hvernig skal fjarlægja tæki á iCloud.com
- Fjarlægðu öll hulstur og/eða skjávörn. Ekki senda kapal og hleðslutæki nema þig grunar að vandinn sé tengdur því.
- Fylltu út og prentaðu fylgiblað tækisins.
Nú ætti tækið þitt að vera tilbúið til innsendingar eða móttöku hjá endursöluaðila.
Áður en þú sendir annað tæki á verkstæði Epli
Áður en þú sendir tækið þitt til okkar, eða ferð með það til endursöluaðila sem sendir tækið áfram til okkar, skaltu fylgja þessum skrefum:
- Fjarlægðu öll hulstur og/eða filmur. Ekki senda kapal og hleðslutæki nema þig grunar að vandinn sé tengdur því.
- Ef um Apple TV er að ræða skaltu senda fjarstýringuna með.
- Ef um AirPods er að ræða skaltu senda bæði eyrun og hleðsluboxið.
- Fylltu út og prentaðu fylgiblað tækisins.
Nú ætti tækið þitt að vera tilbúið til innsendingar eða móttöku hjá endursöluaðila.
Utanáskrift fyrir póst
Verkstæði Epli
Laugavegi 182,
105 Reykjavík
*Ef þú nærð ekki að slökkva á Find My Device getur Epli ekki þjónustað tækið þitt. Þessi regla kemur frá Apple og er ætlað að koma í veg fyrir að þriðji aðili geti komið með tækið þitt inn í þjónustu án þinnar vitundar. Ef þú manst ekki Apple ID aðganginn þinn eða lykilorðið getur þú farið inn á iForgot hjá Apple.
Útgáfudagur: 17. mars 2020