Ef iPad ræsir ekki eða er frosinn
Ef iPad er með frosinn skjá, svarar ekki snertingu, eða nær ekki að klára ræsingu, þá erum við með lausnir fyrir þig í þessari grein.
Ef skjárinn er svartur eða frosinn
Fylgdu skrefunum fyrir þitt tæki.
Á iPad án Home takka
Snúðu tækinu svo aflrofinn snúi upp.
-
Ýttu snöggt á hækka takkann sem er nær aflrofanum. Ekki halda honum inni.
-
Ýttu snöggt á lækka takkann sem er fjær aflrofanum. Ekki halda honum inni.
-
Haltu inni aflrofanum þar til tækið drepur á sér og Apple merkið birtist á skjánum.
-
Ef tækið ræsir ekki getur þú fylgt þessum skerfum til að kanna vélbúnað og hlaða tækið. Þú gætir þurft að hlaða tækið í allt að eina klukkustund.
-
Ef tækið ræsir ekki upp eftir klukkustund í hleðslu, kynntu þér næstu skref.
Á iPad með Home takka
-
Haltu inni bæði Home takkanum og aflrofanum þar til tækið drepur á sér og Apple merkið birtist á skjánum.
-
Ef tækið ræsir ekki getur þú fylgt þessum skerfum til að kanna vélbúnað og hlaða tækið. Þú gætir þurft að hlaða tækið í allt að eina klukkustund.
-
Ef tækið ræsir ekki upp eftir klukkustund í hleðslu, kynntu þér næstu skref.
Ef iPad fer í gang en festist í ræsingu
Ef þú sérð Apple merkið eða rauðan eða bláan skjá í ræsingu, prófaðu eftirfarandi:
Á iPad án Home takka
-
Tengdu iPad við tölvu með gagnasnúru. Á Mac með macOS Catalina eða nýrri útgáfu, opnaðu Finder. Á Mac með macOS Mojave eða eldri útgáfu, eða á Windows PC, opnaðu iTunes. Finndu út hvaða útgáfu macOS þú ert að nota.
-
Gerðu eftirfarandi með tækið tengt við tölvuna, snúðu tækinu þannig að aflrofin snúi upp:
-
Ýttu snöggt á hækka takkann sem er nær aflrofanum. Ekki halda honum inni.
-
Ýttu snöggt á lækka takkann sem er fjær aflrofanum. Ekki halda honum inni.
-
Haltu inni aflrofanum.
-
Haltu afrofanum áfram inni þar til þú sérð recovery-mode skjáinn á tækinu.
-
-
Þegar þú færð val um restore eða update, veldu Update.
-
Tölvan mun sækja nýjustu útgáfu iPadOS frá vefþjónum Apple. Ef það tekur lengur en 15 mínútur mun iPad fara sjálfkrafa úr Recovery Mode, og þú munt þurfa að endurtaka skref 2-4.
Á iPad með Home takka
-
Tengdu iPad við tölvu með gagnasnúru. Á Mac með macOS Catalina eða nýrri útgáfu, opnaðu Finder. Á Mac með macOS Mojave eða eldri útgáfu, eða á Windows PC, opnaðu iTunes. Finndu út hvaða útgáfu macOS þú ert að nota.
-
Haltu inni Home takkanum og aflrofanum á meðan tækið er tengt við tölvuna.
-
Haltu tökkunum inni þar til þú sérð recovery-mode skjá á tækinu.
-
Þegar þú val um restore eða update, veldu Update.
-
Tölvan mun sækja nýjustu útgáfu iPadOS frá vefþjónum Apple. Ef það tekur lengur en 15 mínútur mun iPad fara sjálfkrafa úr Recovery Mode, og þú munt þurfa að endurtaka skref 2-4.
Viðgerð
Ef tækið virkar ekki eftir þessi skref gætir þú þurft að koma með það í viðgerð.
Fyrirmynd greinar sótt á vef Apple 17. desember 2024