Leiðbeiningar fyrir iPad

Leiðbeiningar fyrir iPad

Endurræsa iPad

Lærðu að slökkva á iPad, og kveikja svo aftur á honum.

Hvernig á að endurræsa iPad sem ekki er með Home takka

  1. Haltu inni bæði aflrofanum og öðrum hljóðtakkanum þar til „slide to power off“ birtist á skjánum.

    iPad Pro and iPad mini, blue arrows highlight the buttons needed to turn off the devices
  2. Dragðu til hægri til að slökkva, bíddu í 30 sekúndur á meðan tækið slekkur á sér. Ef tækið er frosið eða svarar ekki snertingu, fylgdu þá þessum leiðbeiningum til að þvinga það til endurræsingar.

  3. Til að kveikja aftur á tækinu, haltu inni aflrofanum þar til þú sérð Apple merkið á skjánum.

Hvernig á að endurræsa iPad með Home takka

  1. Haltu inni aflrofanum þar til „slide to power off“ birtist á skjánum.

    No alt supplied for Image
  2. Dragðu til hægri til að slökkva, bíddu í 30 sekúndur á meðan tækið slekkur á sér. Ef tækið er frosið eða svarar ekki snertingu, fylgdu þá þessum leiðbeiningum til að þvinga það til endurræsingar.

  3. Til að kveikja aftur á tækinu, haltu inni aflrofanum þar til þú sérð Apple merkið á skjánum.

Fyrirmynd greinar sótt á vef Apple 17. desember 2024

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: