Setja upp iCloud á Mac
Lærðu hvernig á að setja upp iCloud á tækjunum þínum, restin gerist sjálfvirkt.
Fyrir bestu upplifunina á iCloud skaltu ganga úr skugga um að tækið þitt standist lágmarks kröfur fyrir þá þjónustu sem þú sækist eftir.
Notaðu nýjustu útgáfu macOS
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé að keyra nýjustu útgáfu macOS.
Smelltu á Apple valmyndina > About This Mac > Software Update. Ef þú ert að keyra macOS Mojave eða eldra melltu á Apple valmyndina > App Store og athugaðu hvort uppfærsla sé í boði.
Skráðu þig inn
Smelltu á Apple valmyndina > System Preferences og veldu Apple ID. Ef þú ert að nota macOS Mojave eða eldri skaltu velja iCloud. Skráðu inn Apple ID og lykilorð. Þegar þú skráir þig inn kviknar sjálfkrafa á iCloud.
Skoðaðu iCloud stillingar
Smelltu á Apple valmyndina > System Preferences og veldu Apple ID. Ef þú ert að nota macOS Mojave eða eldri skaltu velja iCloud. Veldu öpp—eins og Photos, Contacts, Calendars og öpp frá þriðja aðila—sem þú vilt nota með iCloud.
Settu upp iCloud á hinum tækjunum þínum til að samkeyra gögnin þín allsstaðar.
Finndu geymsluplan sem hentar þér
Einn öruggur staður fyrir allar myndir, skjöl og fleira
Útgáfudagur: 8. janúar 2020