Slökkva á Activation Lock eða Find My
Finndu út hvað þarf að gera ef þú sérð Activation Lock á tækinu þínu eða ef þú þarft að fjarlægja Activation Lock á tæki sem þú ert ekki með í þínum fórum og/eða fer ekki í gang.
Fjarlægja á tæki sem birtir Activation Lock skjá
Fylgdu skrefunum á skjánum til að skrá þig inn með þeim Apple ID aðgangi og lykilorði sem þú notaðir til að setja upp tækið, eða sláðu inn láskóðann á tækinu. Ef þú manst ekki hvað notandanafnið á Apple ID aðgangnum þínum er, prófaðu þá að nota tölvupóstfang eða símanúmer sem þú notar vanalega með Apple .
Finna út notandanafn á Apple ID aðgangi eða endurstetja Apple ID lykilorð.
-
iOS 13 eða iPadOS 13 og nýrri útgáfur
- Opnaðu Settings appið.
- Veldu nafnið þitt efst á skjánum.
- Veldu Find My.
- Veldu Find My iPhone/iPad.
- Slökktu á Find My iPhone.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið þitt og veldu svo Turn Off.
iOS 12 og eldri útgáfur
- Opnaðu Settings appið.
- Veldu nafnið þitt efst á skjánum.
- Veldu iCloud.
- Veldu Find My.
- Slökktu á Find My iPhone/iPad.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið þitt og veldu svo Turn Off.
iOS 17 eða iPadOS 17 og nýrri útgáfur með kveikt á Stolen Device Protection
- Opnaðu www.iCloud.com/find í Safari á tækinu sjálfu.
- Skráðu þig inn með Apple ID aðgangnum, tölvupóstur eða símanúmer, og sláðu inn lykilorðið þitt.
- Veldu tækið þitt.
- Ýttu á Remove from Account.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið til að staðfesta.
-
macOS Ventura 13 og nýrri
- Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri > System Settings.
- Smelltu á nafnið þitt.
- Smelltu á iCloud.
- Skrollaðu niður og ýttu á „Show more apps“.
- Smelltu á Find My Mac.
- Smelltu á „Turn Off...“ við hlið Find My Mac: On
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið og smelltu svo á Continue
macOS Catalina 10.15 - macOS Monterey 12
- Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri > System Preferences.
- Smelltu á Apple ID.
- Smelltu á iCloud.
- Smelltu á Find My Mac.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið og smelltu svo á Continue.
macOS 10.14 og eldri
- Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri > System Preferences.
- Smelltu á iCloud.
- Hakaðu frá Find My Mac.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið og smelltu svo á Continue.
-
- Opnaðu Watch appið á iPhone.
- Veldu All Watches efst til vinstri.
- Veldu litla i takkann við hlið úrsins sem á að fjarlægja.
- Ýttu á Unpair Apple Watch.
- Ýttu á Unpair [nafnið þitt] Apple Watch.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið og ýttu svo á Unpair efst til hægri eða Done á lyklaborðinu.
-
iPhone eða iPad
- Tengdu tólin við tækið.
- Opnaðu Settings appið.
- Veldu Bluetooth.
- Ýttu á litla i takkann hægra megin við AirPods sem á að fjarlægja.
- Skrollaðu alveg neðst og ýttu á Forget This Device.
- Ýttu á Forget Device til að staðfesta.
-
- Opnaðu www.iCloud.com/find.
- Skráðu þig inn með Apple ID aðgangnum, tölvupóstur eða símanúmer, og sláðu inn lykilorðið þitt.
- Veldu tækið sem á að fjarlægja.
- Ýttu á Remove from Account.
- Sláðu inn Apple ID lykilorðið til að staðfesta.
Þú getur einnig notast við Find My (eða Find My iPhone) appið á iPhone, iPad eða Mac til að fjarlægja önnur tæki.
Ef þú sérð ekki Remove from Account hnappinn þarftu að slökkva á tækinu sem þú ætlar að fjarlægja og reyna aftur.
Sértu ekki lengur með aðgang að Apple ID aðgangnum þínum getur þú óskað eftir að slökkt verði á Activation Lock með því að sanna eign þína á tækinu með kaupnótu. Sjá nánar hér: Activation Lock support request.
Fyrirmynd greinar sótt frá Apple 15. febrúar 2024