Stærri skjáir, betri rafhlöður, Camera Control myndastýring og nýr eyðimerkur litur.
iPhone 16 Pro og iPhone 16 Pro Max
iPhone 16 Pro og iPhone 16 Pro Max símarnir eru nú með stærri skjái og fara úr 6,1” í 6,3” og 6,7” í 6,9” án þess að stækka mikið um sig. Ný A18 Pro flaga opnar á nýja möguleika og fer flagan leikandi létt með persónulegu gervigreindarþjónusta Apple Intelligence. Camera Control myndastýring er nýr takki á hliðinni og hugbúnaður sem hjálpa þér að fanga augnablikið, ná betri myndum og skynja umhverfið með myndavélinni.
iPhone 16 Pro og iPhone 16 Pro max kemur í fjórum litum: svörtum, títan, hvítum og eyðumerkur-títan.
iPhone 16 Pro Max með lengstu endingu allra iPhone frá upphafi.
Stærri skjáir, nýr litur, betri títan og stærri rafhlaða
Það er meira pláss til að skoða á iPhone 16 Pro. iPhone 16 Pro skjárinn fer úr 6,1” í 6,3” án þess að stækka mikið og iPhone 16 Pro Max skjárinn fer úr 6,7” í 6,9”. Það eru fjórir litir og einn af þeim nýr: eyðimerkur-títan. Títan málmurinn í ramma símanna hefur verður uppfærður um gæðaflokk minnkar stærðina og eykur gæðin. Nýjar stærri rafhlöður og betri orkunýting auka endingu símanna og er iPhone 16 Pro Max með lengstu endingu allra iPhone frá upphafi.
iPhone 16 Pro og iPhone 16 Pro Max eru með nýja A18 Pro flögu
Mun meiri afköst fyrir Apple Intelligence gervigreind
iPhone 16 Pro og iPhone 16 Pro Max eru með nýja A18 Pro flögu sem eykur afköst og gerir símunum kleift að taka upp 4K myndbönd í 120 römmum með Dolby Vision sniðinu. Apple Intelligence gervigreindin opnar á nýja möguleika og tryggir á sama tíma persónuvernd. Gervigreindin hjálpar við að skrifa texta (á bandarísku), skapa myndefni, tengja aðgerðir milli appa og flýta fyrir daglegu lífi.
iPhone 16 Pro | iPhone 16 Pro Max
Camera Control takki
Náðu meiri stjórn á myndavélinni með Camera Control
Camera Control er ný leið til að fanga augnablikið eða hleypir þér beint að umhverfiskynjun sem hjálpar þér að greina það sem er í kringum þig. Camera Control er innfelldur takki og hugbúnaður til að taka myndir, myndbönd eða skynja umhverfið. Nýttu þér umhverfisskynjun Apple Intelligence til að bera kennsl á hluti og staði í kringum þig með myndavélinni.
Fallegri og klárari Siri
Siri fer úr kúlunni sinni og út að köntum með nýju útliti.
Siri fer úr kúlunni sinni og út að köntum með nýju útliti. Siri mun nú skilja meira mælt mál (ekki íslensku), tala betur og fylgir þér þegar þú skiptir um skoðun í miðri setningu. Þá verður hægt að skrifa til Siri frekar en að tala við hana og þegar Siri veit ekki svarið verður hægt að leita til ChatGPT.